..welcomehomeyou..
Vorum geggjað snobbaðar og fansí og gistum á flughótelinu í keflavík áður en við fórum því við áttum að vera mættar á völlinn fyrir allar aldir, glætan að ég hefði nennt að keyra í rútu frá rvk eldsnemma um morguninn, gleymdu því;) en ég ætla að reyna að lýsa þessu með smávegis myndefni;)

jæja, mættar til hrefnu og bjartar eftir góðan dag á strikinu, þreyttar og lúnar og allt tilheyrandi, komin tími á að hvíla sig fyrir stóru stundina;)

á leiðinni í lestinni til ballerup, köbenhavn til að berja goðin augum.. við tók löng löng bið í skítakulda í biðröð og öllu sem tilheyrir að fara á stóra tónleika..

kvöldmaturinn var virkilega góður, ekta danskur öl og popp einnig;) (sorrý lísa, gleymdi að snúa þér)..

MÆTTIR á sviðið góðum þremur klukkutímum seinna, var reyndar alveg glataður upphitunargæi sem eyðilagði næstum því stemminguna.. glataður segi ég!! EN þarna eru þeir í fyrsta laginu sem var larger than life, alveg meðidda.. fíla þetta;)

fór næstum því að grenja hérna, þegar þeir tóku helpless when she smiles.. :) ó svo fallegt..

minn heittelskaði.. ómæ.. hann var geggjaður.. einmitt þegar þarna ömurlegi upphitunargæinn spurði "who's your favorite backstreet boy" þá ómaði salurinn AAAAAJJJJJJJJJJ.. VÚHÚÚÚÚ.. offkorrs:)

brian ennþá með pósuna á hreinu, var einmitt að rifja upp gömlu tímana þegar þeir voru að byrja alveg hardcore töffarar;) æjjj had to be there moment.. EN bara við Lísa munum eftir því sem hann sagði, múahahahaha;)

lokalagið "now let me shooooow youuuu the shape of my heaaart".. þetta er pottþétt það skemmtilegasta sem ég hef upplifað á ævinni til þessa, það er bara þannig;)

jæja, dagurinn eftir.. elísabet ekki lengi í bjórinn.. :)

þokkalega á leiðinni á djammið í köben, getur varla klikkað.. djöfull erum við samt svalar.. úff..

hittum þessar skellibjöllur & skelltum okkur á tjúttið með þeim, takk fyrir skemmtilegt kvöld stelpur mínar;)

svona djammar sá danski..

svo var flugið heim aftur gríðarlega ferskt eins og þið sjáið:)
endum þetta á þessu.. svo eru fleiri myndir inná www.myspace.com/urduromars .. þannig enjoy;)
skrudda kveður;)
..ineverwannahearyousaaaay..
En það sem er annað í fréttum fyrir utan það sem ég hef bloggað um núna tvisvar.. Leikskólinn er alltaf samur við sig, 8 tímar með dásamlegum börnum sem lífga uppá grámyglaðan veruleikann, kem svo heim þar sem dásamlegur hundur lífgar uppá restina af deginum og kvöldið.. Og það gerist ekki mikið meira.
Stefnt er á borgarferð á föstudaginn, keyrandi af því að við týmum alls ekki að fljúga, helvítis okur sem er í gangi hjá þessi helvítis andskotans flugfélagi (afsakið orðbragðið).. Ferming hjá Bínu fínu á sunnudaginn & það er alveg skylda að mæta.. :)
En, 10 dagar í BSB.. Þeir sem vilja hringingu, bíði bara við símann og ef þið fáið slíka þá verðiði sko heppin.. Vúhú.. :)
Blogga næst í ferðasögu-myndabloggi frá Kóngsins Köbenhaaaavn;)
Skrudda kveður - Det er klårt!!
..start spreading the news..
En ég nenni samt ekki að blogga, ætlaði bara að minna ykkur á að ég er að fara á Backstreet boys eftir nááááákvæmlega EINN mánuð og EINA viku, úff.. Þvílík og önnur eins gleði:)



Reyndar er Kevin minn hættur (já hildur þessi heiti er hættur).. Sem er algjör bömmer EN ég er samt að DEYJA ÚR SPENNNNNNNNNINGI!!
Er að missa vatnið..
En ég er farin í kaupfélagið..
Skrudda kveður - á leiðinni á besta deit í heimi..
..i'm a house of cards in the hurricane..
It's official..
Eftir nákvæmlega 2 mánuði, munum við Elísabet fara á geðveikt deit með fjórum eldheitum karlmönnum í Danmörku, nánar tiltekið í Billerup.. Getting the hint?!?!
Já, ég er að segja ykkur það.. það er 12 ára draumur að fara að rætast hjá mér..
VIÐ ERUM AÐ FARA Á BACKSTREET BOYS TÓNLEIKA EFTIR NÁKVÆMLEGA TVOOOO MÁNUÐI.. ÓMÆGOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOD!!
Þessir hafa verið númer 1 2 og 3 síðan ég var svona 8 eða 9 ára & þeir hafa aldrei aldrei dottið úr þeim sætum hjá mér.. Childhood dream coming true.. Ég er í skýjunum..
Langaði bara að deila þessum geðveiku fréttum með ykkur.. ;)
VÚHÚÚÚÚ..
Skrudda kveður - ómægoooooooooood..
..saturdaaaaay wait..
Komiði sæl kæru lesendur (hver svosem þið eruð) á þessu gullfallega laugardagskvöldi.. Veðrið úti er dásamlegt, enginn vindur, snjókoma & þar af leiðandi fullt fullt af gullfallegum jólasnjó.. Ég varð svo heilluð þegar ég vaknaði í morgun að ég dró Arnar Boga sko með mér út að leika, hell yeah.. Og Tíbrá líka, ekkert smá fyndið að fylgjast með henni hlaupa í snjónum.. ;) En smá updeit, held að spá "punktablogg" sé málið..
Ég er alls alls alls ekki komin yfir það að Heath Ledger sé dáin. Þið haldið ábyggilega að ég sé klikkuð en það er alveg met hvað ég tek þetta inná mig.. Var að horfa á SAG awards um daginn og það kom svona "memorium" um alla leikara sem hafa dáið á árinu, og Heath var auðvitað síðastur.. Og án þess að ég vissi þá var ég allt í einu byrjuð að hágráta.. Ég sverða! Þetta er ömurlegt.. Bara trúi þessu ekki, enda búin að vera ástfangin af honum síðan 10 things kom út, og það eru þónokkur ár síðan.. :(
En að allt öðru, er loksins komin með aðra vinnu.. Frystihúsið verður bara að spjara sig án mín.. :) Er orðin leikskólapæja með meiru, ekkert smá þægileg vinna.. Litlu börnin eru æðisleg og konurnar sem vinna þarna ennþá betri. Þannig mér þykir þetta mjög gaman, þótt peningarnir séu kannski ekki uppá marga fiska, þá er skemmtilegra að vera í vinnu sem manni finnst gaman í heldur en að píííína sig uppúr rúminu fyrir e-ð sem maður meikar alls alls ekki. End of story.
Elskuleg amma mín hún Erla átti afmæli síðasta þriðjudag og óska ég henni auðvitað innilega til hamingju með það, er alveg pottþétt á því að hún skoði bloggið mitt á hverjum einasta degi;)
Skellti mér einnig á blót um daginn... Gleðin var gífurleg en þreytan var líka svaaaakaleg þegar leið á kvöldið, skil eiginlega ekki neitt í þessu.. Er orðin svo slöpp í djamminu (enda bara búin að djamma tvisvar síðan um áramótin, trúiði því?!?!?!?) að ég fór heim ÁÐUR en ballið var búið, og það hefur aldrei nokkurn tímann gerst áður. Ég sverða!! Mjöööög slappur leikur hjá minni.. En ég held að næsta djamm verði ekki fyrr en ég kem til Reykjavíkur sem er helgin 15. febrúar í STÓRafmæli hjá alveg bjútífúl frænku, og það er alveg málið að spara sig þangað til:)
En ég segi þetta gott í bili, næsta blogg verður örugglega eftir svona mánuð ef ég þekki mig rétt;) Kasta bara kveðju á þá sem eru ekki hérna á landinu og þá aðallega Kötlu pjötlu, Kæju pæjuna mína & Monsa heimilislausa:)
Og svo óska ég Söndru Hrafnhildi til hamingju líka:* (youknowwhati'mtalkingaboutbeibí)
Vá en skemmtilegt og væmið blogg þarna í endann..
Skrudda kveður - væmin gjéééélla.. :)
ein í lokin af okkur lísu sem ég stal hjá henni, er ekki búin að setja mínar inn :/
bleeeee..
..deyjaungirþeirsemguuðirnirelska..
..húnáammælíídaaag..

sætasta

arnar og tíbba í sumar :)

ég og tíbba mín um jólin :)
það er pottþétt ekki hægt að finna skemmtilegri, fyndari og sætari hund eins og hún er.. alveg dásamleg.. þetta ár er búið að vera frábært af því að hún er búin að lífga það upp svo sannarlega með komu sinni;) gull..
skrudda kveður - sem elskar litla hundinn sinn :)
..tvöþúsundogátta meeen..
Prinsinn Mikael Leó kom í heiminn með látum og var þar af leiðandi fyrsta langömmubarnið í móðurfjölskyldunni minni sem og hann Dagur Björnsson sem var hinsvegar barnabarn númer 13 í sömu familíu:) Sennilega hápunkturinn á árinu, ekki spurning..
Stelpan skellti sér loksins til útlanda ásamt fríðu föruneyti, réttara sagt til Tenerife þar sem gleðin var við völd og mikið mikið mikið af góðum mat borðuðum og ennþá meira drukkið,
Huginn kom sér ekki uppúr 3. deild sem sökkaði, ég skellti mér til Höfuðstað Íslands í tvo og hálfan mánuð ca. Fékk ekki nóg eða neitt svoleiðis, átti bara engan pening og var ekki nógu heppin. Ég kem samt aftur, ekki spurning.
Brinzí litla stóð sig eins og hetja í Ungfrú Ísland keppninni, var austurlandi til sóma eins og maður segir:)
Sjálfstæðisflokkurinn hélt meirihluta í ríkisstjórn sem kom sér vel.. Ekki jafn vel fyrir borgarstjórnina EN mér er alveg sama því bæjarstjórnin á Seyðisfirði stendur sig að sjálfsögðu með prýði og það er það sem skiptir máli fyrir mig:) hehe..
Já mér dettur eiginlega ekkert mikið meira í hug.. Allir flúnir af klakanum, Símon stungin af og ekki kemur hann í bráð.. Karen að fara á sunnudagskvöldið, Sif farin og ég veit ekki hvað og hvað.. Endar allt með því að ég og litla Elísabet verðum einar eftir hérna í firðinum fagra.. Sem og Guðmundur Jónsson, einhverjir fleiri!? Stofna saumaklúbb?! Ekki?! Okei.. En ég er að spá í að segja þetta gott í bili.. Blogga sennilega aftur eftir mánuð eins og mér er einni lagið:) Endum þetta á nokkrum myndum frá áramótunum sem ég er by the way búin að setja inná mæspeisið mitt EN þið þurfið samt að vera vinir mínir til að geta skoðað:)

Lísa & Böddi voru hress að vanda..

Íbbi stóð sig brjálæðislega vel sem DJ að vanda (og auðvitað Villi, er bara ekki með mynd af honum)

Telma yndi lét loksins sjá sig í firðinum fagra..

Sonsa var í ruglinu (samt svooo skemmtileg)..

Og dró Lísu með sér (bókstaflega) í ruglið.. :)
GLEÐILEGT ÁR ELSKURNAR MÍNAR :*
Skrudda kveður úr firðinum fagra :)
..myndablogg í boði orublu..

Hérna eru Silvía Night og Gilzenegger að hittast í fyrsta sinn..

Hver man ekki þegar hann Viddi gifti sig, og var með slörið sjálfur..

Þeir dagar þegar hann Viktor var ekki búin að uppgötva brúnkukrem eða aflitunarefni í hárið.. :)

Þegar hún Sandra Rut dansaði eins og engill fyrir fjöldann allann af fólki :)

Þegar Kiddi videofluga kenndi Hjálmari að dansa..

Þeir dagar sem þessi sætu og dásamlegu drengir bjuggu allir í firðinum fagra, en allir (nema Óli) stungnir af til Danaveldis.. Glatað!

Þegar Hidda var alltaf umvafinn karlmönnum.. (Var?? Er það greinilega ennþá)

Þegar Lísa Maren og Mikki Nikk voru kærustupar..............................................DJÓK!!!

Þegar Hildur og Gunnar voru svoleiðis á kaaaafi í kókinu..

Hér er klárlega upphafið af SQUIRT..

Þegar karlmenn Seyðisfjarðar gengu berseksgang.. Ekki veit ég afhverju..

Þegar Sigfríð breytti nafninu sínu í Ívar..
Og að lokum..

Þegar Jón Kolbeinn hélt að hann gæti flogið..

En misskildi það alveg og féll svo vel í jörðina aftur..
Bendi á að þetta er allt í gríni gert, og er bara fyrsta myndablogg af allavega tveimur fyrir jólin.. Luma á fullt af skemmtilegum myndum ;)
Skrudda kveður úr gleðinni :)
..hann verður hjá mér um jólin..
En ég held að þessi síða sé að deyja út.. Hef aldrei neitt að segja og er alltaf svo andlaus.. EN smá updeit samt..
- Sigfríð átti afmæli í gær, til hamingju beibí :)
- Arnar Bogi afmæli deginum áður, til hamingju með það drengurinn minn :)
- Ég er flutt aftur austur.. Reykjavíkin kláraði alla peningana mína, og ég þurfti þar af leiðandi að fara bara í mömmu og pabbakot aftur, sem er alltaf best :)
- Tíbrá er æðisleg..
- Seyðisfjörður er æðislegur..
- Rúmið mitt er æðislegt..
- Og ég held að ég fari bráðum að setja um jólaseríu í gluggann minn.. Svei mér þá..
- Hollywoodpartý á Öldunni á laugardaginn, Grace Kelly, Victoria Beckham, Alex Owens & Kelly Osbourne hafa boðað komu sína.. Heyrst hefur að David Beckham muni fylgja konu sinni.. En maður veit aldrei.. :)
- Elísabet Maren er mætt í fjörðinn fagra einnig, mikil gleði :)
- Sakna Andreu og Helgu.. Og allra hinna.. :)
- En Seyðisfjörður er samt æðislegur..
Þetta er það helsta í fréttum, frystihúsið er svo staðreynd í fyrramálið.. 06:55 að staðartíma.. Þarf að fara að læra pólsku ef ég ætla að eignast einhverja vini.. Gudda, eins gott að þú bjóðir uppá e-ð teiti.. Veit að það eru allir gríðarlega spenntir :) Ég er það allavega..
Skrudda kveður - landsbyggðarmær að nýju :)

